Í Hlíðarfjalli
Í Hlíðarfjalli

Í gær fór drjúgur hluti nemenda sem eru í valgreininni Útivist með jarðfræðiívafi á gönguskíði í Hlíðarfjalli. Veðrið var himneskt og allir nutu útivistarinnar og fegurðar snævi þakinnar náttúrunnar og létu nokkrar byltur og byrjendaóhöpp ekkert á sig fá. Í för með hópnum voru kennararnir Hólmfríður Jóhannsdóttir, Guðrún Helga Kristjánsdóttir og Þórhildur Björnsdóttir.