Innritun í framhaldsskóla landsins stendur nú yfir á innritun.is.

Umsóknarfrestur er til og með:

Nemendur í 10. bekk: 7. júní

Eldri nemendur: 31. maí

Nemendur sem óska eftir að koma eftir 9. bekk sækja beint til skólans fyrir 25. maí, sjá hér.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um heimavist næsta skólaár 2024-2025. Sótt er um á heimasíðunni heimavist.is - ekki er nóg að haka við heimavist á innritun.is.

Á ma.is má sjá svör við ýmsum spurningum varðandi innritun.

Á haustönn komu 10. bekkingar úr skólum á Akureyri og nágrannabyggðum í heimsókn í skólann og kynntu sér námsframboðið og félagslíf. Þessar vikurnar eru svo náms- og starfsráðgjafar skólans á faraldsfæti og hitta nemendur í 9. bekk á Akureyri.

Komdu í heimsókn í MA: Um miðjan maí verða dyr skólans opnaðar upp á gátt fyrir umsækjendur, forráðafólk og öll sem vilja fá að líta aðeins inn í skólann og kynna sér starfsemina.

Auk þess er alltaf hægt að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjöfum skólans eða stjórnendum ef frekari upplýsingar vantar, sjá hér.