Uglan - hollvinasjóður MA auglýsir styrki til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

Við brautskráningu 17. júní n.k. verða í sjötta sinn veittir styrkir úr Uglunni - hollvinasjóði MA. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýbreytni í námsframboði og kennsluháttum auk þess að  styðja við hvers konar þróun og nýsköpun nemenda og starfsfólks skólans. Gæta skal að fjölbreytni við ákvörðun styrkveitinga, þannig að styrkir séu ekki veittir sama eða sambærilegu verkefni til lengri tíma. Nemendur og starfsmenn skólans geta sótt í sjóðinn.

Fjölbreytileiki verkefna hefur verið mikill undanfarin ár og hafa styrkir farið til verkefna á vegum ýmissa nemendafélaga og kennara. Má þar sem dæmi nefna:

  • Styrk til kaupa á bakgrunnum og almennt viðhald á ljósmyndakompu FálMA
  • KaffMA fékk styrk til upphafskostnaðar vegna reksturs kaffivélar fyrir nemendur MA
  • Muninn hlaut styrk til uppbyggingar á nýjum og betri vef fyrir skólafélagið, undirfélög og almennt félagslíf MA
  • TóMA fékk styrk til kaupa á trommusetti
  • Enskudeild skólans var styrkt til kaupa á lesbrettum
  • CheMA fékk styrki til kaupa á efnum og hlífðarbúnaði
  • Styrki til kennara vegna þróunar á námsefni í félagsfræði, efnafræði, íslensku og stærðfræði


Nánari upplýsingar um Ugluna - hollvinasjóð MA má finna
hér.

Kostnaðar- og verkáætlun skal fylgja umsóknum.

Umsóknareyðublað, sem finna má hér, þarf að berast til Önnu Sigríðar Davíðsdóttur í tölvupósti á netfangið anna@ma.is fyrir 30. apríl n.k.