heimspekisaga
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2FM05 og FÉLA2AA05
Í þessum áfanga er lögð áhersla á ítarlegar pælingar og umræður um nokkur meginstef heimspekinnar frá tilurð hennar í Grikklandi um það bil 600 f. Kr. og fram á okkar daga, einkum á sviði frumspeki og þekkingarfræði. Auk þess verður fjallað um upphaf félagsvísinda og helstu kenningar þeirra fræða. Höfuðsnillingar heimspekisögunnar verða í forgrunni. Meira verður lagt upp úr nákvæmum skilningi á einstökum kenningum og frjóum samræðum en hundavaðsfróðleik og mikilli yfirferð. Engu að síður fái nemendur heildarsýn yfir útlínur heimspekisögunnar, samhengi og rof, frá upphafi til nútíma.
Þekkingarviðmið
- upphafi heimspeki og fræðilegra vísinda hjá jónísku náttúruspekingunum og þeim breytingum í hugsunarhætti sem því fylgdi
- frumspeki og þekkingarfræðilegum viðhorfum forsókratískra heimspekinga og gera sér grein fyrir hughyggju og efnishyggju, rökhyggju og raunhyggju
- samræðuaðferð Sókratesar og deilum við sófista; algildishyggju og afstæðishyggju í siðferðisefnum
- heimspekikerfi Platons og meginhugtökum; kenningum Aristótelesar og flokkunarkerfum
- hugmyndaheimi hellenismans; kýnisma, efahyggju, stóuspeki, epíkúrisma og nýplatonisma
- sambandi kristni og heimspeki á miðöldum; trú og skynsemi, sögu og sannindum og frumspekilegri stöðu almennra hugtaka
- vísindalegri og pólitískri hugsun á nýjöld; kenningum rökhyggjumanna: Descartes, Spinoza og Leibniz; kenningum raunhyggjumanna: Locke, Berkeley og Hume
- hugmyndaheimi upplýsingar og rómantíkur; „hinum kóperníkönsku umskiptum“ Kants á sviði þekkingarfræði og frumspeki og „skilyrðislausa skylduboðinu“ í siðfræði hans
- söguspeki Hegels og Marx og gagnrýni Kierkegaards og Nietzsche á hefðbunda heimspeki
- heimspekilegum forsendum félagsvísinda og tengslum rökhugsunar og hefðarhugsunar í klassískri félagsfræði hjá Comte, Tocqueville, Tönnies, Simmel, Durkheim og Weber
- helstu stefnum og straumum á 20. öld
Leikniviðmið
- taka þátt í heimspekilegri rökræðu
- gera grein fyrir heimspekilegum og félagsvísindalegum hugtökum
- meta gildi heimspekilegra rökfærslna
- greina og skýra heimspekilegan texta
- skrifa stuttar heimspekilegar rökfærsluritgerðir
Hæfnisviðmið
- bera saman ólíka hugarheima úr sögu fræða og vísinda
- yfirfæra þekkingu og skilning á einu sviði fræða yfir á annað
- hugsa og tjá sig skipulega á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt um málefni líðandi stundar jafnt sem hin þyngri vandamál tilverunnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is