Heildun fyrir raungreinabraut
Einingafjöldi: 7
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3FX07
Helstu efnisþættir eru afleiður ýmissa falla, hagnýting diffurreiknings, diffur, óákveðið heildi, flatarmál, heildanleiki, ákveðið heildi, heildunaraðferðir, rúmmál snúða, fyrsta stigs diffurjöfnur, runur og raðir og talningarfræði.
Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
Þekkingarviðmið
- afleiðum ýmissa falla
- staðbundnum útgildum og beygjuskilum
- diffurhugtakinu og línulegum nálgunum
- stofnföllum helstu falla
- bútun og undir- og yfirsummum
- óákveðnum og ákveðnum heildum
- tengslum ákveðins heildis við flatarmál
- innsetningaraðferðum og hlutheildun
- stofnbrotsliðun ræðra falla
- línulegum diffurjöfnum af fyrsta stigi og diffurjöfnum með aðskiljanlegum breytistærðum
- hagnýtingu diffurjafna
- þrepun
- runum, röðum og hlutsummurunum
- mismuna- og kvótarunum
- skúffu- og margföldunarreglunum, umröðunum, samantektum og tvíliðureglu
- meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar námsefnisins
- skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
Leikniviðmið
- diffra ýmis föll
- gera formerkjamyndir og lesa úr þeim
- rannsaka ferla falla
- finna línulega nálgun falls í punkti
- nota óbeina diffrun til að finna diffurkvóta
- finna stofnföll ýmissa falla
- finna yfir- og undirsummur með bútun
- finna flatarmál með heildun
- heilda
- finna rúmmál snúða sem snúið er um láréttar línur
- leysa diffurjöfnur af fyrsta stigi
- byggja upp þrepasannanir
- vinna með runur, raðir og hlutsummurunur
- nota talningarfræðireglur
- nota tvíliðuregluna
- setja námsefnið fram skv. meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og geta valið aðferð sem við á hverju sinni
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
- beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausn yrtra verkefna
- leysa þrautir með skipulegum leitaraðferðum og uppsetningu jafna
- klæða yrt verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
- fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
- geti beitt einföldum samsettum röksemdum
- geti rakið sannanir í námsefninu og greint hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun
- geti byggt upp einfaldar eigin sannanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is