saga nýaldar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2FM05
Hér er um að ræða beint framhald af áfanganum SAGA2FO05. Áfanginn spannar það tímabil í sögu mannkyns sem kennt er við nútíma, þ.e. tímann frá frönsku byltingunni 1789 fram til líðandi stundar. Reynt verður að varpa ljósi á þá samfélagsþróun sem orðið hefur á sviði stjórnmála, búsetu, atvinnu- og efnahagslífs, jafnt innanlands sem utan, á þessu tímabili.
Þekkingarviðmið
- helstu aðferðum sögu sem fræðigreinar og námsgreinar
- sögu Vesturlanda í grófum dráttum
- helstu kenningum í stjórnmálum
- helstu persónum sem hafa mótað söguna
- helstu atburðum sem hafa haft áhrif á þróun samfélaga
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
Leikniviðmið
- greina orsakir og afleiðingar sögulegra atburða
- afla sér heimilda um tiltekin viðfangsefni sögunnar
- lýsa samskiptum ríkja og þjóðfélagshópa
- lesa sagnfræðilega texta
Hæfnisviðmið
- bera saman nútíð og fortíð
- meta gildi og áreiðanleika heimilda, frásagna og sögulegra skýringa
- draga lærdóm af sögulegum mistökum
- skilja hvernig nútímasamfélög byggjast á fortíðinni
- lesa og túlka kort, myndir og texta
- afla sér upplýsinga með margvíslegum hætti og í ólíkum upplýsingamiðlum
- stunda sjálfstæð og fræðileg vinnubrögð við umfjöllun sögulegra viðfangsefna
- tengja sögu við aðrar fræðigreinar
- fjalla um söguleg viðfangsefni með viðurkenndum aðferðum og kynna niðurstöður sínar á skipulegan hátt í ræðu og riti, t.d. í ritgerð og/eða fyrirlestri
Nánari upplýsingar á námskrá.is