Ferðamálafræði 2

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað almennt um ferðaþjónustu innanlands og uppbyggingu hennar. Rætt er um helstu starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar og fengnir fyrirlesarar um sérstök efni. Sjónum er beint að Íslandi öllu en þó með höfuðáherslu á Norðurland. Í þessum áfanga er fyrst og fremst unnið með landafræði og náttúru svæðisins með ferðamennsku og möguleika innlendra sem erlendra ferðamanna að leiðarljósi. Saga og menning landsins fléttast að sjálfsögðu líka inn í viðfangsefnin og unnið er á öllum þeim tungumálum sem nemandinn lærir í skólanum eða hefur önnur tök á.

Þekkingarviðmið

  • landafræði, jarðfræði og náttúrufræði Íslands og hvað af því getur laðað að erlenda ferðamenn
  • menningu og sögu svæðisins
  • aðferðum, tækjum og tólum til að búa til árangursríkt kynningarefni og sjónum einkum beint að stafrænni framsetningu hvort sem er á vef eða myndböndum
  • mikilvægi góðrar tungumálakunnáttu, jafnt í íslensku sem erlendum málum, og færni til að beita henni við munnlega og skriflega kynningu
  • undirstöðuatriðum í framsögn, framkomu og flutningi kynningarefnis og frágangi á vefsíðum, myndböndum og öðrum myndmiðlum

Leikniviðmið

  • flytja mál sitt á íslensku og erlendum tungumálum í þeim miðlum sem notaðir eru við hvert verkefni
  • greina skilmerkilega frá því sem fyrir augu ber í kynnisferðum
  • útbúa kynningarefni á mismunandi formi

Hæfnisviðmið

  • segja með nákvæmni en áreynslulaust frá því helsta sem hrífa má ferðafólk
  • nýta sér gögn á vefjum og úr bókum til að bæta kynningar sínar og kynningarefni
  • útbúa fjölbreytt ferðagögn og kynningarefni
  • beita mismunandi aðferðum eftir ólíkum markhópum
  • meta kynningarefni ferðaþjónustuaðila á uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is