almenn efnafræði 2
Einingafjöldi: 6
Þrep: 3
Forkröfur: Almenn efnafræði 1
Áfanganum er ætlað að byggja ofan á grunnþekkingu í efnafræði. Fjallað verður um gaslögmálin, efnajafnvægi og orkubreytingar efnahvarfa, jafnvægisfasta efnahvarfa og lögmál Le Chatelier's. Mjög ítarlega er farið í sýru- og basalausnir, títrun, búfferlausnir og annað sem viðkemur sýrum og bösum s.s. hvörf málma við sýrur. Haldið verður áfram með leysni salta og leysnimargfeldi (Ksp). Einnig verður farið í rafefnafræði, Galvaníhlöð og aðrar rafhlöður og áhersla lögð útreikninga sem byggist á rafeindaflutningi og staðalafoxunarspennu, hálfhvarfa, Nernst jafna og rafgreiningu. Mikil og rík áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindir efnisþættir eru fléttaðir saman. Áhersla er lögð á framkvæmd verklegra æfinga og skýrslugerð sem tengjist efninu.
Þekkingarviðmið
- hugtakinu þrýstingur og kenningunni um hreyfiorku sameinda
- gaslögmálum Boyles, Gay-Lussacs, Charles og Avogadros
- sameinaða gaslögmálinu og kjörgaslögmálinu
- orkubreytingum í efnahvörfum, varma, fríorkubreytingu, óreiðu, stöðuorku og vermi
- sjálfgengum efnahvörfum og ákvarðað hraða efnahvarfa
- áhrifum virkjunarorku á sjálfgengni efnahvarfa
- áhrifum hvata, hita, efnismagns og þrýstings á jafnvægi efnahvarfa
- umhverfum efnahvörfum
- útvermum og innvermum efnahvörfum
- jafnvægislögmálinu og lögmáli Le Chateliers
- myndun salta og ákvarðað leysnimargfeldi þeirra
- myndun botnfalla og spáð fyrir þeim með reikningum
- áhrifum samskonar jóna á jafnvægi fellingarhvarfa
- sýrum og bösum og pH hugtakinu
- sjálfsjónun vatns, sýru og basa klofningsföstum og hagnýtingu þeirra til að reikna sýrustig
- muninum á af römmum og veikum lausnum af sýrum og bösum
- sýru og basapörum í vatnslausnum
- búfferlausnum og sýrustigi saltlausna
- sýru basa títrun og litvísum
- spennuröðinni
- galvaníhlöðum
- Nernst jöfnunni
- rafgreiningu
- tæringu og tæringarvörnum
Leikniviðmið
- greina milli ólíkra efnafræðihugtaka
- beita mælistærðum, einingum og markverðum tölustöfum
- skilgreina ofangreind hugtök
- reikna dæmi tengd ofangreindum hugtökum í efnafræði
- nota efnafræðihugtök
Hæfnisviðmið
- átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í efnafræði
- beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna og setja fram niðurstöður sínar með óvissu og markverðum hætti
- hagnýta sér þekkinguna við framkvæmd verklegra æfinga í efnafræði.
- skilja mikilvægi efnafræðinnar í raunvísindum
- geta unnið af öryggi og sjálfstæði og beitt röksemdarfærslu á efni tengd grunnefnafræði
- setja fram rannsóknarniðurstöður og rita skýrslur
- stunda áframhaldandi nám í efnafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is