shakespeare og 19. öldin í bókmenntum

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3BS04
Þessi áfangi er lokaáfangi á mála- og menningarbraut. Í áfanganum verður lesið ágrip af enskri bókmenntasögu frá upphafi fram á 19. öld með það fyrir augum að nemendur geti tekist á við lestur texta frá ólíkum tímabilum. Lesnir verða skemmri textar og sýnishorn úr lengri textum frá merkustu tímabilum bókmenntasögunnar ásamt tveimur  skáldsögum frá þessum tímabilum. Jafnframt verður eitt stórt leikverk eftir William Shakespeare tekið til yfirferðar. Áfram verður unnið með þá færni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum.

Þekkingarviðmið

  • uppruna tungumálsins, útbreiðslu og þróun þess
  • bókmenntasögu og tengslum bókmennta við engilsaxneska menningu og sögu
  • þekktum bókmenntaverkum í enskri bókmenntasögu
  • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi

Leikniviðmið

  • nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum um mál sem eru efst á baugi hverju sinni
  • skilja almennt talað mál þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram eða verið að talað um flókna hluti
  • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónlegum og prófað ólík stílbrigði og málsnið

Hæfnisviðmið

  • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og viðhorfum sem liggja þar til grundvallar
  • búa yfir hæfni til að lesa og greina bókmenntatexta með frá helstu tímabilum enskrar bókmennta- og málsögu
  • greina líkingamál og flókinn orðaforða sem og bókmenntafræðihugtök
  • gera grein fyrir viðfangsefnum sínum á lipurri, blæbrigðaríkri og að mestu hnökralausri ensku
  • tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
Nánari upplýsingar á námskrá.is