Fallafræði
Einingafjöldi: 6
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2RU06
Helstu efnisþættir eru hornaföll, hornafallajöfnur, rúmfræðireikningur, stikun, ofanvarp, föll, ferlar falla, ýmis fallahugtök, samsett og andhverf föll, nokkur mikilvæg föll, eiginleg markgildi og samfelldni.
Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
Þekkingarviðmið
- hornaföllum, bogamáli og bogaeiningu
- hornafallareglum og lausn hornafallajafna
- sínus- og kósínusreglunum
- ákveðum
- stikunum hrings og línu
- ofanvarpi á línu og vigur og fjarlægð frá línu
- föllum, ferlum falla og ýmsum fallahugtökum
- samsettum og andhverfum föllum
- veldis- og rótarföllum, algildisfallinu, margliðuföllum, ræðum föllum, vísis- og lograföllum og hornaföllum
- eiginlegum markgildum og samfelldni falla
- meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar námsefnisins
- skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
Leikniviðmið
- finna horn frá einum vigri til annars, beita hornafallareglum og leysa hornafallajöfnur
- leysa ýmis rúmfræðileg verkefni m.a. með því að nota vigra, sínus- og kósínusreglur, ákveður, stikanir og ofanvörp
- vinna með ýmis föll og fallahugtök
- teikna gröf falla
- mynda samsett föll og finna andhverfur falla
- leysa ýmsar jöfnur tengdar föllum
- finna eiginleg markgildi falla
- nota milligildisreglu til að sanna tilvist lausna jafna
- setja námsefnið fram skv. meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og geta valið aðferð sem við á hverju sinni
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
- beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausn yrtra verkefna
- leysa þrautir með skipulegum leitaraðferðum og uppsetningu jafna
- klæða yrt verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
- fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
- geti beitt einföldum samsettum röksemdum
- geti rakið sannanir í námsefninu og greint hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun
Nánari upplýsingar á námskrá.is