Sund 1
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
Í áfanganum er farið er í æfingar og drillur til að auka sundfærni í helstu sundtegundum; bringsundi, skriðsundi, baksundi og flugsundi. Notuð eru ýmis hjálpargögn eins og sundflár, blöðkur og spaðar. Einnig er unnið með þolæfingar í lengri vegalengdum. Farið er í helstu skyndihjálparatriði sem upp geta komið í sundlaug (köfun, björgunarsund, lífgunaraðferðir).
Þekkingarviðmið
- tækni í sundaðferðunum
- skyndihjálparatriðum í sundlaug
- forvarnargildi heilsuræktar fyrir líkama og sál
Leikniviðmið
- synda allar sundaðferðir sér til heilsubótar
- geta bjargað sjálfum sér og öðrum í vatni
- tileinka sér tækni í mismunandi sundaðferðum
- nýta sundferðir til þol- og styrktarþjálfunar
Hæfnisviðmið
- synda töluverða vegalengd sér til ánægju og heilsubótar
- hafa vald á mismunandi sundtegundum til að auka fjölbreytni við sundiðkun
- geta brugðist við slysum sem upp geta komið í sundlaug eða við vötn
Nánari upplýsingar á námskrá.is