algebra, jöfnur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf með einkunn B eða hærra
Meginefni áfangans er talnareikningur, hlutföll, einingaskipti, prósentureikningur, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, hornaföll, hnitarúmfræði, lína, fleygbogi og hringur.
Aðaláhersla áfangans er á þjálfun í dæmareikningi úr þessum efnisatriðum.
Þekkingarviðmið
- tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
- hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
- frumtölum og frumþáttun
- liðun, þáttun og bókstafabrotum
- veldum, rótum, velda- og rótarreglum
- jöfnum af fyrsta og öðru stigi, sértilfelli af þriðja og fjórða stigs jöfnum auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
- hornaföllum
- hnitakerfinu
- línu, fleygboga og hring
- notkun algengra stærðfræðitákna s.s jafnaðarmerkis og sviga
Leikniviðmið
- nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
- frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
- einfalda brot og brotabrot
- liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
- nota rætur og brotna veldisvísa
- beita velda- og rótarreglum
- leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
- skipta milli algengra eininga
- nota reglur um prósentu- og vaxtareikning
- nota hornaföll til að finna horn og hliðar í þríhyrningum
- nota jöfnu línu, fleygboga og hrings til að reikna út helstu stærðir og kanna eiginleika þeirra
- nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
- vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
- beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
- beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir úr kunnuglegu samhengi, m.a. með því að setja upp jöfnur
- klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is