Spila rytmíska tónlist með öðrum nemendum II
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: HLSV2RA02
Áfanginn miðar að því að nemendur þjálfist í samspili, inntónun og túlkun mismunandi tónlistarstíla. Samspilskennsla tengir saman ólíka þræði rytmísks tónlistarnáms, svo sem hljóðfæranám, söng og tónfræðigreinar. Í áfanganum æfa nemendur ýmsa þætti sem víkja að færni þeirra s.s. hljóma-og nótnalestur, samstarf, spuna, túlkun og framkomu og færni á eigið hljóðfæri. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
Þekkingarviðmið
- þeirri tækni sem þarf til að leika á hljóðfærið þau verkefni sem lögð eru fyrir í áfanganum
- ólíkum stílum rytmískrar tónlistar
- uppbyggingu hljómsveita og samspilshópa með ólíka hljóðfærasamsetningu
- mikilvægi góðrar samvinnu
Leikniviðmið
- leika verk í mismunandi stílum rytmískum tónlistar
- nýta tæknilega kunnáttu sína sem best í flutningi
- lesa nótur og hljóma frá blaði sem hæfa áfanganum
- sjálfstæðum vinnubrögðum
Hæfnisviðmið
- geta leikið með hljómsveit ólíka stíla rytmískrar tónlistar miðað við sitt getustig
- vinna með hljómræna, rytmíska og lagræna þætti þeirrar tónlistar sem unnið er með m.a. í tilliti til spuna
- vinna sjálfstætt
- geta bæði leitt og fylgt í samspili
- stuðla að góðri samvinnu og taka tillit til annara
Nánari upplýsingar á námskrá.is