Auka færni og þekkingu á hljóðfæraleik II
Einingafjöldi: 6
Þrep: 2
Forkröfur: HLFÆ2KA06 - Hljóðfæraleikur, klassískur
Áfanginn er verklegur og einstaklingsmiðaður þar sem nemandi sækir einkatíma í hljóðfæraleik og meðleik, þar sem það á við. Áfanginn miðar að því að nemendur læri að spila ólíka tónlistarstíla og þjálfist í tækni og líkamsbeitingu til að ná sem bestri færni á hljóðfæri sitt. Nemendur þjálfast líka í að spila með öðrum, í nótnalestri og hvað það er að vera leiðandi í tónlistarflutningi. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni.
Þekkingarviðmið
- Tónbókmenntum og sögu viðkomandi hljóðfæris
- Ólíkum tónlistarstílum
- Sjálfstæðum vinnubrögðum
- Þeirri tækni sem þarf til að leika á hljóðfærið þau verkefni sem lögð eru fyrir í áfanganum
- Vinnubrögðum við að fullvinna verk með meðleikara
Leikniviðmið
- Leika verk í mismunandi stílum
- Nýta tæknilega kunnáttu sína sem best í flutningi
- Lesa nótur frá blaði sem hæfa áfanganum
- Beita líkama sem eðlilegast við flutning tónlistar
- Sýna frumkvæði í vinnu með undirleikara
Hæfnisviðmið
- Geta greint ólíka stíla tónlistar
- Vinna sjálfstætt
- Sýna frumkvæði í hljóðfæratímum og við heimanám
- Leika verkefni áfangans á sannfærandi hátt
- Flytja tónlist með öðrum hljóðfæraleikurum
- Fullvinna verkefni með undirleikara
- Koma fram á tónleikum með verkefni sem unnin eru í áfanganum
Nánari upplýsingar á námskrá.is