lífeðlisfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: LIFF1GL05
Meginefni áfangans er mannslíkaminn í heild sinni. Öll helstu líffærakerfi eru tekin fyrir; taugakerfi, innkirtlakerfi, loftskiptakerfi, hringrásarkerfi, meltingarfærakerfi, þveitikerfi, skynkerfi, stoðkerfi og æxlunarfærakerfi. Einstök líffæri eru skoðuð innan hvers líffærakerfis með áherslu á staðsetningu, gerð og virkni og starfsemi hvers þeirra tengd við önnur líffæri og líffærakerfi. Aðaláhersla áfangans er á lífeðlisfræði mannsins, þó nokkur dæmi séu tekin hjá öðrum dýrategundum til samanburðar.
Þekkingarviðmið
- hvaða líffæri raðast saman innan hvers líffærakerfis
- staðsetningu og stærð líffæra í líkamanum
- eðlilegri virkni hvers líffæris
- samstarfi og samhæfingu líffæra
- samvægi innan líkamans
Leikniviðmið
- þekkja líffæri hvers líffærakerfis
- staðsetja hvert líffæri innan mannslíkamans
- greina óeðlilega starfsemi líffæra frá eðlilegri
- þekkja ýmsa innri og utanaðkomandi áhrifavalda á starfsemi líffæra
- skilja hvernig hvert líffæri er líkamanum nauðsynlegt til að mynda heild sem virkar eðlilega
Hæfnisviðmið
- skilja tengsl einstakra líffæra og líffærakerfa
- átta sig á staðsetningu og tengslum líffæra
- átta sig á þegar starfsemi einstakra líffæra verður óeðlileg
- skilja hvaða afleiðingar óeðlileg starfsemi líffæra hefur á önnur líffæri og líkamann í heild sinni
- geta nýtt sér þekkingu sína í daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is