þjálfari - almennur hluti, þjálfun barna
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna og unglinga. Nemendur öðlast grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga. Gerðar eru verklegar æfingar þar sem farið er í íþróttahús og nemendur æfa sig að kenna hvert öðru. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlunargerð og markmiðssetningu. Nemendur fá undirsstöðuþekkingu í kennslu og aðferðafræði íþróttaþjálfunar. Farið er yfir efni almennrar skyndihjálpar og sérstök áhersla lögð á að bregðast við íþróttameiðslum. VIð lok áfangast hefur nemandi lokið fræðilegum hluta fyrsta þjálfarastigs ÍSÍ.
Þekkingarviðmið
- líkamlegu og andlegu þroskaferli barna og unglinga
- hlutverki og ábyrgð þjálfara í íþróttastarfi barna og unglinga
- mikilvægi góðs skipulags við þjálfun
- grundvallarkennslufræði við þjálfun
- beitingu fyrstu hjálpar ef slys ber að höndum
- helstu atriðum næringar- og þjálfunarfræða
Leikniviðmið
- skipuleggja þjálfun í einstökum tímum og yfir lengra tímabil
- að stjórna hópi við ástundum íþróttar
- að beita almennri skyndihjálp
- að nota teygjubindi og íþróttateip
Hæfnisviðmið
- koma að íþróttaþjálfun barna
- framkvæma áætlun sína
- bregðast við óvæntum aðstæðum ef slys ber að höndum
Nánari upplýsingar á námskrá.is