Lyfjafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA1AA05 og EFNA2AB05
Áfanganum er ætlað að veita ákveðna innsýn í hvernig læknar og aðrar heilbrigðisstéttir nota lyf til lækninga. Fjallað er um hvernig frumur bregðast við lyfjum og hvaða áhrif lyf hafa á stýrikerfi fruma. Farið er yfir skilgreiningar sem tengjast öllum lyfjum eins og dreifingu þeirra, frásog og útskilnað þeirra ásamt lyfjaformum. Fjallað er um helstu lyfjaflokka, verkun þeirra og aukaverkanir.
Þekkingarviðmið
- helstu skilgreiningum um lyfjafræði
- hugtökum eins og lyfjagjöf, frásogi, dreifingu, útskilnaði og aukaverkunum lyfja
- helstu lyfjaformum, kostum þeirra og göllum
- umgjörð lyfjamála á Íslandi og víðar
- verkunarsviði og gerð sýkla- og verkjalyfja auk annarra algengra lyfjaflokka
Leikniviðmið
- átta sig á lagaumhverfi lyfjafræðinnar
- gera samhæfðri lyfjafræði góð skil
- þekkja sérhæfða lyfjafræði algengra lyfjaflokka
Hæfnisviðmið
- sýna skilning á verkun tiltekinna lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra
- miðla upplýsingum um helstu lyfjaflokka til annarra
- átta sig á tengslum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
- stunda áframhaldandi nám í lyfjafræði og þeim greinum heilbrigðisvísinda þar sem lyfjafræði kemur við sögu
Nánari upplýsingar á námskrá.is