leikstjórinn
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum verður fjallað um og farið í alla helstu verkferla leikstjórans. Þar má nefna greiningu handrita og persóna, skipulag æfinga og samvinnu við leikara og aðra listræna stjórnendur. Áhersla er lögð á mikilvægi heildarinnar, bæði á sviðinu og utan þess.
Þekkingarviðmið
- helstu undirstöðuatriðum í greiningu leikverka og persóna þeirra
- ólíkum aðferðum við nálgun hugmynda og mismunandi verka
- ábyrgð og hlutverki leikstjórans
- skipulagi og undirbúningi æfingaferlisins
- samvinnu við aðra listræna stjórnendur
Leikniviðmið
- vinna senur út frá ólíkri aðferðafræði og nálgunum
- beita faglegu tungumáli leikhússins á skilvirkan hátt
- greina leikverk og persónur og taka sjálfstæðar ákvarðanir í sköpun sinni
- vinna með leikurum og öðlast færni í að stuðla að því að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín
Hæfnisviðmið
- geta á faglegan og jákvæðan hátt skilað af sér heilstæðri sýningu í samvinnu við aðra
- sameina ólík listform og hugmyndafræði í eina heild
- rökstyðja listrænar ákvarðanir sínar
- miðla á skilmerkilegan hátt hugmyndum sínum og sýn til samstarfsfélaga
- greina frá helstum kenningum og aðferðum sem hann hefur tileinkað sér á faglegan og skýran hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is