grunnáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn veitir grunnþekkingu á verkfærum leikarans í persónusköpun, greiningu leikverka og uppbyggingu á senum. Nemendur hljóta þjálfun í verklagi og verkferlum leikhússins og byggð er upp leikni í sjálfsaga og samskiptum. Áhersla er lögð á að nemendur læri að beita sköpunargleði til jafns við formuppbyggingu sena og persóna. Áfanginn er unninn í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar. Nemendur fara reglulega í heimsóknir á æfingar hjá Leikfélagi Akureyrar, ræða við fagfólk og fá innsýn í uppbyggingu leiksýningar.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að nýta sér jákvæðni í samvinnu við aðra
- verkfærum leikarans (rödd, líkama, tilfinningum og ímyndunarafli)
- uppbyggingu leikrita
- verkfærum og verkferlum leikhússins
- spuna og uppbyggingu sena og persóna
- mikilvægi góðrar samskiptahæfni og aga
Leikniviðmið
- nýta verkfæri leikarans í framkomu almennt
- nýta aga og sköpunargleði sína saman
- vinna uppbyggilega með öðrum
- beita gagnrýninni hugsun í áhorfi sínu á leiklist sem og á eigin vinnu
- einbeita sér í hugmyndavinnu og allri vinnu sem fer fram á leiksviði
- beita sjálfstæðum vinnubrögðum
Hæfnisviðmið
- greina spunasenur og persónur
- rökræða leikhús, senur og persónur í leikverkum af ígrundun
- skapa persónur og túlka tilfinningar og ætlan á sviði
- beita hlustun og jákvæðri samvinnu á sviði og utan þess
- beita sjálfsaga og sjálfstæðum vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is