Alþjóðamál
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í þessum áfanga er sjónum beint að menningu og málefnum líðandi stundar um allan heim. Skoðaðir verða ólíkir menningarheimar, helstu einkenni þeirra og staða með það að markmiði að öðlast skilning á fjölbreytni heimsins og hversu mikil dýrmæti eru fólgin í ólíkum litbrigðum menningar og mannlífs. Ólga og átök í heiminum verða skoðuð og rýnt í ástæður þess að til árekstra kemur milli ólíkra menningarheima. Fjallað verður um alþjóðakerfið og alþjóðasamskipti og þátttöku Íslands í þeim. Áfanganum er ætlað að gera nemendur meðvitaðri um heiminn í heild sinni, opnari og víðsýnni. Áhersla er lögð á virkni nemenda, gagnrýna hugsun og hæfni til að draga ályktanir. Námsmat felst í verkefnavinnu, umræðutímum og kynningum.
Þekkingarviðmið
- ástæðum þess að menningarheimar rekast á og átök skapast
- hvers vegna ákveðin öfl eru ráðandi í alþjóðasamskiptum og af hverju ólíkar stefnur þrífast
- ólíkum sjónarhornum á tiltekin mál í alþjóðasamskiptum
- alþjóðasáttmálum og forsendum þeirra
- helstu alþjóðastofnunum
- stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu
Leikniviðmið
- setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
- vinna á skilvirkan hátt, sýna frumkvæði og samvinnu
- verja/útskýra rökstudda afstöðu sína
- taka taka þátt í umræðu, beita virkri hlustun og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn háttþátt í umræðu, beita virkri hlustun og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt
- beita upplýsingatækni við þekkingarleit
Hæfnisviðmið
- greina aðalatriði í fréttaflutningi alls staðar að úr heiminum á gagnrýninn hátt
- átta sig á þegar um upplýsingaóreiðu er að ræða eða röngum upplýsingum dreift, viljandi eða óviljandi
- tileinka sér viðsýni og umburðarlyndi gagnvart fólki frá ólíkum menningarheimum
- ræða við aðra af nokkru öryggi og fordómaleysi um efni sem tengjast ólíkum menningarheimum og átökum þeirra á milli
- taka þátt í málefnalegum umræðum
- sýna gagnrýna hugsun og skipulögð vinnubrögð við lausn viðfangsefna
- nálgast viðfangsefni á mismunandi og viðeigandi hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is