Lagt á brattann
Lagt á brattann

Hópur starfsfólks og nemenda fór í góðu veðri upp á Ystuvíkurfjall á laugardaginn. Þetta var góð ferð og ferðalangarnir ánægðir. Að vanda fór Sigurður Bjarklind fyrir hópnum og harmaði að ekki skyldu fleiri hafa notað tækifærið og anda að sér heilnæmu fjallaloftinu, því ekki hefur gefið til þess oft á undangengnu vori.

Hér eru myndir sem Sigríður Benediktsdóttir tók í ferðinni.