Fyrirlestur um kynferðislegt obfbeldi, Þórdís Elva
Fyrirlestur um kynferðislegt obfbeldi, Þórdís Elva

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur og leikari flutti í morgun fyrirlestur í Kvosinni í MA þar sem hún ræddi um kynferðislegt ofbeldi á Íslandi, en hún gaf fyrir skemmstu út bókina Á mannamáli þar sem hún fjallar um þetta málefni. Fyrirlesturinn var vel heppnaður og Þórdís náði greinilega mjög vel til áheyrenda, sem spurðu margs bæði á meðan á fyrirlestri stóð og einnig á eftir. Þórdís fór jafnframt í nokkra bekki með kennurum í félags- og uppeldisfræðum.

.