Á fyrirlestri í Kvosinni
Á fyrirlestri í Kvosinni

Þriðji dagur og síðasti í velgengnisdagalotu annarinnar rann upp regnvotur og nemendur undu sér í áframhaldandi verkefni. Á þriðja degi vann 1. bekkur áfram með einkunnarorð skólans og ljósmyndakeppni, og síðan að sjálfsmynd, 2. bekkur glímdi við níðþung verkefni um lífið og vandamál þess og þriðji bekkur var meðal annars í vistfræðifyrirlestri í Kvosinni.

Nokkrar myndir voru teknar hér og hvar á vettvangi.