Innritun í MA er nú lokið. Aðsókn að skólanum var góð og hefja 230 nýnemar nám við MA á fyrsta ári haustið 2010. Þar af eru 16 nemendur sem koma beint úr 9. bekk.

Búið er að senda svarbréf til allra þeirra sem sóttu um skólavist í MA og ættu bréfin að berast 25. júní. Greiðsluseðlar verða sendir fljótlega og í heimabanka hjá þeim nemendum sem hafa aðgang að slíku. Gjalddagi er 12. júlí og eindagi 20. júlí.  Ef ekki er greitt á réttum tíma er litið svo á að nemandinn hafi fallið frá umsókn sinni.
Skólinn verður settur 13. september.

.