Í dag voru tilkynnt úrslit í Ung skáld AK, samkeppni ungs fólks í skapandi skrifum. Aldís Embla Björnsdóttir hlaut fyrstu verðlaun fyrir smásögu sem hún nefnir Einræðisherrann. Önnur verðlaunin hreppti Kristofer Alex Guðmundsson, en hann sendi í keppnina ljóðaflokk sem nefnist Brútháll. Þriðju verðlaun hlaut svo Birna Pétursdóttir, en framlag hennar í keppnina var leikþáttur, sem nefnist Bóhemíudrottningin.

Það eru Amtsbókasafnið og Akureyrarstofa sem standa að þessari ungskáldakeppni ásamt framhaldsskólunum, MA og VMA, Háskólanum, Ungmennahúsinu og Menningarráði Eyþings. Þetta er annað árið sem þessi keppni er haldin og fjöldi innsendra verka var svipaður nú og í fyrra. Í inngangi Hólmkels Hreinssonar Amtsbókavarðar kom fram að í þetta sinn hefðu prósar verið í meirihluta en í fyrra hefðu flest verkin verið ljóð. Dómnefnd var skipuð fulltrúum allra skólanna sem nefndir voru. Formaður dómnefndar, Brynhildur Þórarinsdóttir dósent, afhenti verðlaunin og las upp umsagnir um verðlaunaverkin, og gat þess jafnframt hversu skemmtilega fjölbreytt þau væru, leikþáttur, ljóð og saga.

Verðlaunahafar hlutu viðurkenningaskjal, ávísanir upp á 50, 30 og 20 þúsund krónur auk þess sem Menningarfélag Hrauns í Öxnadal gaf þeim sitt eintakið hverju af bókinni Jónas Hallgrímsson – ævimynd. Svo skemmtilega vill til að þessu sinni að allir verðlaunahafarnir tengjast MA, Aldís Embla er nemandi í 2. bekk, Kristofer Alex er í 3. bekk og Birna varð stúdent frá skólanum 2009.

Mynd Ragnars Hólm af verðlaunaveitingunni er tekin af akureyri.net.

Hér á eftir fara umsagnir dómnefndar um verðlaunaverkin:

1. sæti: Einræðisherra eftir Aldísi Emblu Björnsdóttur
Einræðisherra er forvitnileg og vel stíluð smásaga - eða örsaga. Sjónarhornið er skemmtilegt og sögumaður óvenjulegur - enda ekki oft sem smábörn á fyrsta ári láta móðann mása. En merkilegt nokk er þessi ungi sögumaður trúverðugur. Það kannast margir við þetta eigingjarna, stjórnsama eða hreinlega freka barn sem þarna fær rödd. Hnyttinn endirinn varpar hins vegar nýju ljósi á krílið - og sýnir að hér er á ferð lunkinn höfundur.

2. sæti: Brútháll eftir Kristófer Alex Guðmundsson
Ljóðabálkurinn Brútháll er bæði hressandi og athyglisverður. Að efni og formi er þetta fornkvæði enda er sjálfur Óðinn í aðalhlutverki. Í klaufaskap sínum hefur hann týnt lyklunum að Valhöll og auðvitað endar leit hans með sögulegum bardaga. Stíll og málfar eru með fornu lagi en höfundur tekur sig mátulega alvarlega eins og sjá má á hendingum á borð við „Lyklarnir þínir liggja á borðstofuborðinu.“ Höfundur hefur ágætt vald á tungumálinu og glottir skelmislega til fortíðarinnar.

3. sæti: Bóhemíudrottningin eftir Birnu Pétursdóttur
Bóhemíudrottningin er stuttur leikþáttur, einræða, ef til vill hluti af stærri heild. Á sviðinu stendur ung, fátækleg stúlka frá Bóhemíu sem gefur okkur innsýn í líf sitt og örlög. Ræða hennar er lipurlega skrifuð og leikræn framsetningin veldur því að hún stendur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum lesanda, með svipbrigðum og látbragði.  Höfundi tekst að skapa trúverðuga persónu, töffara sem auðvelt er að hafa samkennd með.