Á Bókasafni MA
Á Bókasafni MA

Það er þétt setinn bekkurinn á bókasafni MA flesta daga. Nemendur sitja þar við nám og alls konar verkefnavinnu, meðal annars í Íslandsáfanganum. Fleiri hópar eru að vinna að margvíslegum verkefnum og nota safnið, bæði bókakostinn og njóta jafnframt aðstoðar bókavarða við leit að upplýsingum. Myndin var tekin í einu horninu á safninu í dag þegar nemendur úr NÁT-hluta Íslandsáfangans voru að vinna með heimildir.


.