- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Árshátíð MA hefur til afar langs tíma verið stærsti viðburðurinn í félagslífi nemenda. Nánast allir nemendur og stór hópur starfsfólks hefur sótt árshátíðina og mikill metnaður verið lagður í skreytingar, skemmtiatriði og allan undirbúning. Nemendur í þriðja bekk hafa mætt í þjóðbúningum og sett mikinn svip á hátíðina. En COVID setur strik í reikninginn eins og svo víða; árshátíðinni sem hefur verið haldin sem næst fullveldisdeginum 1. desember var frestað til 16. apríl, en í ljósi síðustu breytinga á sóttvarnarreglum ákvað skólafélagið að aflýsa henni. Vonandi verður hún á sínum stað á næsta skólaári og yngri bekkingar geta látið sig hlakka til.