Undirbúningur árshátíðar MA 2008
Undirbúningur árshátíðar MA 2008

Nemendur Menntaskólans á Akureyri vinna nú hörðum höndum að því að undirbúa árshátíðina sem verður í Íþróttahöllinni á föstudaginn. Þar verða rúmlega 900 manns. Um það segir í fréttatilkynningu frá skólafélaginu Hugin:

Föstudaginn 28.nóvember næstkomandi verður haldin árshátíð Menntaskólans á Akureyri og fer hún fram í Íþróttahöllinni á Akureyri. Undirbúningur vegna hátíðarinnar hófst fyrir nokkrum vikum, enda er mikið að skipuleggja. Sérstök skreytingarnefnd, skipuð tugum nemenda, sér um að skreyta höllina frá toppi til táar. Ótal nefndir koma að undirbúningi eins og þessum og því mikilvægt að allir séu að vinna í sátt og samlyndi. Öll þessi störf eru í umsjá stjórnar Hugins, skólafélags MA. Formaður Hugins, inspectrix scholae er Anna Elvíra Herrera Þórisdóttir.

Þrátt fyrir að hafa fagnað stórafmæli í fyrra verður 81 árs afmælið engu síðra, jafnvel mikilfenglegt sem aldrei fyrr. Rúmlega 900 manns, nemendur, kennarar og starfsfólk sitja undir sama þaki og njóta kvöldsins saman. Veitingahúsið Bautinn sér um matinn, en nemendur sjá um að þjóna til borðs, leika tónlist undir borðhaldi og flytja frumsamda skemmtidagskrá. Kvöldinu lýkur svo með dansleik en þar leika hljómsveitirnar Sometime og Land&Synir, en Þuríður og hásetarnir leika fyrir gömlu dönsunum á efri hæðinni.

Árshátíð MA er sem fyrr stærsta vímulaus hátíð sem haldin er árlega á Íslandi. Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í MA að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar. Það er fréttnæmt og hlýtur að teljast til góðra frétta. Góðar fréttir af ungu fólki eru ekki síður fréttir en þegar einhver vandræði koma upp. Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti.

Myndirnar voru teknar þegar nemendur 4. bekkjar æfðu söng á Sal Gamla skóla í gær og skreytinganefnd var að störfum í Íþróttahöllinni að skóladegi loknum.

.