Mállýskur í 4A
Mállýskur í 4A

Nemendur í þýsku í 4. bekk málabrautar fengu í gær að spreyta sig á austurrískum mállýskum þegar Katharine Weinkamer frá Salzburg kom í heimsókn. Nemendur unnu með henni ýmis verkefni og spjölluðu þýsku.

Fyrr í þessum mánuði kom Katharina í heimsókn og sagði frá Salzburg og bauð upp á ekta Apfelstrudel köku. Í þetta skiptið buðu nemendur 4. A upp á rammíslenskar veitingar. Þá var þessi mynd tekin.