Nemendur í þróunarlandafélagsfræði í Menntaskolanum á Akureyri ætla að halda bingó, laugardaginn 9. maí kl. 16:00 á líkamsræktarstöðinni Bjargi. Vinningar eru veglegir, flugferð, snyrtivörur, gjafabréf í verslanir o.fl.  Bingóið er haldið til styrktar fátækum börnum í Mósambík. Bingóspjaldið kostar 300 krónur og tvö bingóspjöld kosta 500 krónur. Veitingar verða seldar á vægu verði á staðnum.

.