Bjarki Þórðarson
Bjarki Þórðarson

Birt hafa verið úrslit í Þýskuþrautinni 2009. Bjarki Þórðarson í 3A er í hópi þeirra nemenda 21 að tölu sem best stóðu sig. Hann varð þar i 8. sæti.

Í Þýskuþrautinni eru 20 bestu þátttakendunum ( í ár 21 þar sem jafnt var í 19.-21.sæti) boðið til samsætis ásamt fjölskyldum sínum þar sem þeim verða veittar viðurkenningar. Gaman er að sjá hve víðtæk þátttaka í þrautinni er orðin en þessir verðlaunanemendur, 21 að tölu, eru úr 12 framhaldsskólum um land allt.

.