Bleikur dagur í Kvosinni
Bleikur dagur í Kvosinni

Í tilefni af bleikum október og söfnun til styrktar á rannsóknum á brjóstakrabbameini efndu nemendur MA til söfnunar á bleikum degi. Skemmtinefnd skólafélagsins Hugins stóð fyrir þessum þemadegi og hvatti sem flesta til að mæta í bleiku 13. október síðastliðinn. Skólameistari hafði heitið 25 kr á hvern nemanda sem mætti í bleiku og söfnuðust þannig 7.125 krónur ofan á það bætast svo 12.791 króna í frjálsum framlögum frá nemendum og kennurum.

Félagið DerMA stóð á sama degi fyrir því að selja bleikar derhúfur merktar MA sem fjáröflun fyrir Bleiku slaufuna. Derhúfusalan gekk líka vel, 70 derhúfur seldust og söfnuðust þar 70.000 krónur

Í heildina verða þetta þá 89.916 krónur sem nemendur og starfsfólk Menntaskólans á Akureyri gefa Krabbameinsfélagi Íslands til styrktar Bleiku slaufunni, en söfnunin er sem fyrr segir til styrktar á rannsóknum á brjóstakrabbameini.

Í Skemmtinefnd skólafélagsins Hugins eru: Bernódus Óli Einarsson, Edda Sól Jakobsdóttir, Harpa Lind Þrastardóttir, Ísak Máni Grant og Una Magnea Stefánsdóttir.

Í stjórn DerMA eru: Bernódus Óli Einarsson, Egill Örn Richter, Fannar Már Jóhannsson, Ísak Máni Grant og Pétur Steinn Sigurðsson.