Blóðbankabíllinn
Blóðbankabíllinn

Blóðbankabíllinn er á ferðinni á Norðurlandi og verður við Menntaskólann á Akureyri á morgun, miðvikudag, klukkan 10-16.

Þeir sem gefa blóð eru örugglega að bjarga heilsu einhvers og hugsanlega að bjarga lífi. Þess vegna er blóðgjöf góð gjöf. Hún er hættulaus öllum þeim sem eru 18 ára eða eldri og heilbrigðir samkvæmt þeim reglum sem farið er eftir við blóðgjöf.

Gefðu blóð! Þú gætir átt eftir að þiggja sopa úr þeim góða banka.

Upplýsingar um blóðgjöf