Bókasafn skólans er í hjarta skólans á Hólum. Þar er geysimikið safn bókmennta- og fræðirita auk tímarita, sem nemendur hafa aðgang að, ýmist til lestrar á safninu eða til útlána. Meðal safngagna má nefna gæsilegt safn íslenskra ljóðabóka, gjöf vígslubiskupshjónanna Aðalbjargar Halldórsdóttur og sr. Sigurðar Guðmundssonar, en safnið er vistað í Ljóðhúsi, sem er jafnframt vinnu- og fundarherbergi á safninu.

Á bókasafninu er mjög góð vinnuaðstaða fyrir nemendur og mikið notuð. Alls eru sæti á safninu um 80 og oft er hvert sæti skipað.

Starfsfólk:

Ragnheiður Sigurðardóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, yfirbókavörður
Brynhildur Ólöf Frímannsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, bókavörður

Bókasafnið er opnað klukkan 7.45 á morgnana og opið til klukkan 17:55 mánudaga til fimmtudaga og til klukkan 15 á föstudögum.

.