20. október er dagur náms- og starfsráðgjafa. Félag náms- og starfsráðgjafa gefur út sérblað sem fylgir Fréttablaði dagsins og þar er að finna fjölmörg viðtöl við náms- og starfsráðgjafa sem segja frá starfi sínu. Heimir Haraldsson náms- og starfsráðgjafi í MA er einn þeirra. Auk Heimis er Lena Rut Birgisdóttir náms- og starfsráðgjafi í MA. https://frettabladid.overcastcdn.com/documents/SD211020.pdf