- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Ellefu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45.000 krónur.
Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður í fyrra. Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Símans og Happdrættis Háskóla Íslands. Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóðnum fyrir þetta ár rennur út 5. júní nk.
Stjórn sjóðsins velur styrkhafana en við valið er einkum tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi. Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum s.s. í listum og íþróttum.
Háskóli Íslands er stærsti og elsti háskóli landsins og jafnframt sá skóli sem býður upp á mesta fjölbreytni í námsvali. Háskóli Íslands menntar Íslendinga til að takast á við krefjandi störf í framtíðinni og stuðlar þannig að bættum lífskjörum á Íslandi. Í Háskólanum eru stúdentar hvattir til að víkka sjóndeildarhringinn og nýta hæfileika sína til fulls.
Helstu upplýsingar um sjóðinn, umsóknarfrest o.fl. er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is.
Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir G. Ingibjörg Arnardóttir, starfsmaður vísindasviðs Háskóla Íslands, gia@hi.is