Vegna hertra sóttvarnarreglna þarf mögulega að skipuleggja skólastarfið upp á nýtt. Það verður því skipulagsdagur í MA 5. október og kennsla fellur niður. Upplýsingar um framhaldið verða birtar eins fljótt og auðið er. Daginn er samt gott að nýta til náms, lesturs og verkefnavinnu. 

Við tökumst á við breyttar reglur með bjartsýni og samstöðu að vopni, og munum leitast við að hafa staðnám eftir því sem kostur er.