Á Ystuvíkurfjalli
Á Ystuvíkurfjalli

Útivistarhópurinn í Menntaskólanum á Akureyri fór í dag upp á Ystuvíkurfjall undir dyggri leiðsögn Sigurðar Bjarklind. Hann hefur farið þessa leið áður, þetta var í 257. sinn sem hann fer á fjallið. Oft hefur verið sagt hér frá ferðum hans með hópa nemenda en ferðirnar eru mun fleiri.

Þórhildur Björnsdóttir sendi þessar myndir. Hún benti á að með í ferð hefði verið Björn Kristinn Jónsson fyrrum þátttakandi í útivistarhópnum og fráfarinn formaður skólafélagsins Hugins.

Ystuvíkurfarar

Ystuvíkurfarar