Nú er hafin síðari prófvika í MA. Flestir ljúka reglulegum prófum á fimmtudag og föstudag í þessari viku. Einhverjir ljúka sínum prófum fyrr. Það stafar ekki síst af því að símat hefur aukist og sífellt fleiri áföngum er lokið án hefðbundinna prófa.

Sjúkrapróf eru sett föstudaginn 7. júní í 1. bekk og mánudaginn 10. júní í 2. - 4. bekk og endurtökupróf dagana 11. - 14. júní þannig að talsvert verður um próf þessa daga þótt reglulegum prófum sé lokið og meirihluti nemenda hverfi á braut út í sumarið og sólskinið.

Prófsýningar:

Prófsýningar fyrir 1. bekk eru 7. júní.
Prófsýningar í öðrum bekkjum eru eftir hádegi 10. júní.
Prófsýningar, staður og tími, eru auglýstar á töflu við hlið Afgreiðslu á Hólum.

Myndin var tekin í prófi núna rétt áðan.