ESB samningar kynntir. Stefán Jóhannsson í pontu
ESB samningar kynntir. Stefán Jóhannsson í pontu

Í morgun var kynningarfundur í Kvosinni í MA þar sem sagt var frá stöðunni í viðræðum um aðild Íslands að ESB. Stefán Jóhannsson aðalsamningamaður Íslands kom í heimsókn með föruneyti sínu, sagði frá og útskýrði samningaferlið og sat fyrir svörum.

Greinilegt var að áhugi nemenda á þessum málum var mjög mikill og fyrirspurnir þeirra margar og fjölbreyttar og vel ígrundaðar.

Utanríkisráðuneytið er auðvitað á Facebook þar sem sjá má fleiri myndir frá fundinum.

.