Fatasláin er framan við bókasafnið og öllum er frjálst að bæta á eða taka af
Fatasláin er framan við bókasafnið og öllum er frjálst að bæta á eða taka af

Umhverfisnefnd MA kynnti í dag nýtt og spennandi verkefni. Nú má finna fataskiptislá framan við bókasafn skólans. Fólki er frjálst að koma með fatnað og/eða taka af sláni eftir því hvað hentar hverju sinni. Í tilkynningu frá nefndinni segir að textíliðnaðurinn sé einn sá umfangsmesti í heimi og að honum fylgi gríðarleg mengun og umhverfisspjöll.

Frá árinu 2000 hefur framleiðsla á fötum nær tvöfaldast á sama tíma og þau enda fyrr í ruslinu. Aukinni áherslu framleiðenda og kaupenda á svokallaðri skynditísku (Fast Fashion) er að mestu leyti um að kenna. Umhverfisnefnd MA hvetur fólk til að leggja sitt af mörkum til að sporna við frekari sóun:

Verum partur af lausninni en ekki vandanum! Kaupum minna, kaupum notað, notum lengur, gerum við og endurvinnum meira.