Fimm nemendur Menntaskólans á Akureyri náðu þeim árangri að öðlast þátttökurétt í úrslitakeppninni í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema, en hún fer væntanlega fram í mars 2011. Þrír þeirra eru á neðra stigi og tveir á efra stigi. Þeir eru:

Af neðra stigi

  • Hákon Valur Dansson (2T),
  • Steinar Sindri Agnarsson (2U) og
  • Örn Dúi Kristjánsson (2X)

Af efra stigi:

  • Bjarki Geir Benediktsson (4X) og
  • Gunnar Björn Ólafsson (4Y)

Af neðra stigi komust alls 22 í úrslitakeppnina en 24 af efra stigi.

Verðlaunaafhending verður sunnudaginn 24. október kl. 15.00 í stofu HT 300 á Háskólatorgi í Háskóla Íslands.


.