Menntaskólinn á Akureyri auglýsir á ný eftir fjármálastjóra, en í fyrri auglýsingu þótti ekki nægilega skýrt á kveðið um starfsvið hans.

Um starfið sóttu á þriðja tug manna og hefur þeim verið boðið að staðfesta umsóknir sínar miðað við skýrari ákvæði um starfssvið og jafnframt er starfið auglýst almennt til umsóknar. Nýja auglýsingin er í meðfylgjandi fylgiriti.