Við Menntaskólann á Akureyri er laust til umsóknar starf fjármálastjóra. Um er að ræða fullt starf.

Æskileg menntun er háskólapróf sem nýtist í starfinu. Ráðið verður í stöðuna frá 1. mars  2013. Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans. Bókhald skólans er fært í Oracle, fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins.

Skriflegar umsóknir, ásamt prófskírteinum og upplýsingum um nám og fyrri störf, skulu berast Menntaskólanum á Akureyri í síðasta lagi 12. febrúar 2013. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

MA er framsækinn menntaskóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun.  Skólinn  starfar undir kjörorðunum  virðing – víðsýni – árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og  góður starfsandi. 

Leitað er að einstaklingi sem er fær í mannlegum samskiptum, sýnir frumkvæði, getur unnið sjálfstætt og getur samsamað sig skólasýn MA.

Ef þú vilt  takast á við krefjandi starf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér.  Frekari upplýsingar veitir Jón Már Héðinsson skólameistari í síma skólans 4 55 15 55 eða í tölvupósti, netfang jmh@ma.is.

Menntaskólanum á Akureyri,
Jón Már Héðinsson
skólameistari MA