- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Foreldrafélag Menntaskólans á Akureyri (FORMA) var stofnað þann 19. desember 2003. Núverandi stjórn FORMA fundar mánaðarlega og fer yfir ýmis mál sem upp koma í tengslum við ólögráða nemendur skólans. Félagið hefur með einum og öðrum hætti hvatt til samstarfs foreldra, skólayfirvalda og nemenda. Haldnir hafa verið forvarnafundir auk þess sem stjórn félagsins hefur unnið markvisst með námsráðgjafa skólans að ýmsum málum.
FORMA starfar skv. heimild í lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008:
IX. kafli. Ýmis ákvæði.?
50. gr. Foreldraráð.?
Við hvern framhaldsskóla skal starfa foreldraráð. Skólameistari boðar til stofnfundar þess. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og í samstarfi við skólann efla samstarf foreldra og forráðamanna ólögráða nemenda við skólann. Félagsmenn geta verið foreldrar nemenda við skólann.? Kjósa skal í stjórn ráðsins á aðalfundi þess. Foreldraráð tilnefnir einn áheyrnarfulltrúa í skólanefnd. Foreldraráð setur sér starfsreglur.
Markmið FORMA koma fram í starfsreglum þess:
Stjórn FORMA skólaárið 2010-2011 skipa eftirfarandi:
Ívar Ragnarsson, formaður, ivarragnars@simnet.is - ritari
Drífa Þorgrímsdóttir, ritari, drifath@akmennt.is
Ómar Pétursson, áheyrnarfulltrúi í skólanefnd, omarpet@simnet.is
Ólína Freysteinsdóttir, fulltrúi í forvarnanefnd, olina@unak.is
Ingileif Axfjörð, inga@menningarhus.is
Helgi Þ. Svavarsson, helgi@simey.is
Steinunn Benna Hreiðarsdóttir, steinabh@simnet.is
Herdís Zóphóníasdóttir námsráðgjafi herdis@ma.is situr alla fundi FORMA.
Fyrirspurnum og ábendingum má koma til FORMA með tölvupósti: forma@ma.is