Forkeppni Landskeppni í eðlisfræði 2014 fer fram þriðjudaginn 18. febrúar kl. 10:00-12:00 í stofu M12 á Möðruvöllum.

Eðlisfræðikennarar veita frekari upplýsingar.

14 nemendum sem best standa sig í forkeppninni verður boðið að taka þátt í úrslitakeppni, sem fram fer í Háskóla Íslands. Fimm þeirra verða valdir í lið sem tekur þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði í júlí í sumar í Astana í Kasakstan.