Forkeppni í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema verður hér í MA sem annars staðar þriðjudaginn 4. október. Fylgist vel með tilkynningum um stað og stund.

Að öðru leyti er dagskráin í tengslum við Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema sem hér segir skv. vef Íslenska stærðfræðafélagsins.

3.-7. nóvember 2011
Eystrasaltskeppnin fer fram í Greifswald í Þýskalandi.
Mars 2012
Úrslitakeppnin í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema. Dagsetning auglýst síðar.
27. mars 2012
Norræna stærðfræðikeppnin.
4.-16. júlí 2012
Ólympíuleikarnir í stærðfræði haldnir í Mar del Plata í Argentínu.
Nánari upplýsingar um keppnina.