Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Nemendasjóði Menntaskólans á Akureyri. Umsóknarblöð fást í afgreiðslu skólans. Umsóknum skal skilað þangað fyrir hádegi 9. desember n.k.

Nemendasjóði Menntaskólans á Akureyri  er ætlað að styrkja efnalitla nemendur sem stunda reglulegt nám í skólanum.

Stjórn sjóðsins skipa átta fulltrúar, fimm fulltrúar nemenda, hinir sömu og sitja í Hagsmunaráði, tveir fulltrúar kennara auk skólameistara.


.