Brandur er annar frá vinstri á þessari mynd af landsliðinu í eðlisfræði.
Brandur er annar frá vinstri á þessari mynd af landsliðinu í eðlisfræði.

Brandur Þorgrímsson sem lauk stúdentsprófi frá MA í vor keppti í liði Íslands á Olympíuleikunum í eðlisfræði í sumar og hlaut heiðursviðurkenningu fyrir frammistöðu sína. Keppnin fór fram í júlí í Zagreb í Króatíu og keppendur voru 370 frá framhaldsskólum í 80 löndum. Íslendingar hafa aldrei staðið sig betur í þessari keppni. Nánar má lesa um árangur Íslendinganna á vef Háskóla Íslands, en þaðan er myndin tekin.

.