Forma, Foreldrafelag MA og Huginn, skólafélag MA standa fyrir fræðslukvöldi um fjármál og fleira með Jóni Jónssyni í Kvosinni á fimmtudag.

Jón Jónsson er þekktur tónlistarmaður og hefur auk þess leikið knattspyrnu í efstu deild með FH, en hann er hagfræðingur að mennt og hefur um nokkurt skeið flutt erindi og haldið spjallfundi um fjármál og ungt fólk á vegum Arion banka. Hann verður sem sagt í Kvosinni fimmtudaginn 7. apríl klukkan 20.00.